|
|||
2016-02-09 11:19:04 CET 2016-02-09 11:19:04 CET Arion Bank hf. - FjárhagsdagatalArion banki birtir ársuppgjör 2015 miðvikudaginn 24. febrúarArion banki birtir uppgjör ársins 2015 miðvikudaginn 24. febrúar næstkomandi. Til að kynna ársuppgjörið verður haldinn símafundur á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 13.00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði uppgjörsins. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|