|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-11-06 17:03:06 CET 2017-11-06 17:04:07 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur október 2017Í október flutti Icelandair 321 þúsund farþega og var það nánast sami fjöldi og í október á síðasta ári. Fjöldi framboðinna sætiskílómetra var óbreyttur á milli ára. Sætanýting jókst frá fyrra ári og var 83,4% samanborið við 82,2%. Farþegar Air Iceland Connect voru 31 þúsund í október og fjölgaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 22% sem skýrist af flugi frá Keflavík til Belfast og Akureyrar sem ekki var boðið uppá á síðasta ári. Sætanýting nam 63,3% samanborið við 67,5% á síðasta ári. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 20% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 11% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins jókst á milli ára um 2,0 prósentustig og var 86,3%.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|