2014-02-11 18:01:35 CET

2014-02-11 18:02:36 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Marel hf. 2014


Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9,
210 Garðabæ, miðvikudaginn 5. mars nk., kl. 16:00. 

  Dagskrá:

  -- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
  -- Breytingar á samþykktum félagsins:
     -- Grein 4.20 varðandi form og tímafresti á tillögum frá hluthöfum til
        hluthafafundar verði aðlöguð að breytingum sem gerðar hafa verið á 86.
        gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995;
     -- Grein 5.1 varðandi fjölda stjórnarmanna í félaginu verði breytt á þann
        hátt að fjöldi þeirra fari úr 7-9 í 5-7;
     -- Grein 11.1 varðandi eigin hluti verði aðlöguð að breytingum sem gerðar
        hafa verið á 2. mgr. 55. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995;
     -- Grein 15.1 verði breytt þannig að stjórn félagsins hafi heimild til
        útgáfu nýrra hluta í tengslum við kaupréttarsamninga starfsmanna að
        nafnverði allt að kr. 35.000.000 og gildi heimildin í fimm ár frá
        samþykki hennar;
     -- Grein 15.2 verði breytt þannig að stjórn félagsins hafi heimild til
        útgáfu nýrra hlutabréfa að nafnverði allt að 100.000.000 og gildi
        heimildin í fimm ár frá samþykki hennar.
  -- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  -- Önnur mál, löglega borin fram.

  Fundarstörf munu fara fram á ensku.

 Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. 

 Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar
þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö
dögum fyrir fundinn. 

 Frekari upplýsingar um tímafresti þá sem gilda í tengslum við rétt hluthafa
til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, leggja fram ályktunartillögur
fyrir fundinn, o.fl. er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm.
Þar er jafnframt að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn,
þ.m.t. drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning
félagsins fyrir árið 2013, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda
í félaginu m.v. 11. febrúar 2014, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð
verða fyrir fundinn. 

 Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum
fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu
félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. 

 Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15.30. 

  Stjórn Marel hf.