2010-10-13 13:45:48 CEST

2010-10-13 13:46:46 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Englanti Islanti
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 11 0215


Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 11 0215 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 11 0215:
Alls bárust 29 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 19.896 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 12.101 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,62 (flatir
vextir 4,10%).