|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2018-01-08 21:54:03 CET 2018-01-08 21:55:05 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur desember 2017Í desember flutti Icelandair 235 þúsund farþega og voru þeir 7% fleiri en í desember árið 2016. Framboðsaukning á milli ára nam 10% og sætanýting var 76,5% samanborið við 77,2% árinu á undan. Farþegar Air Iceland Connect voru 23 þúsund og fjölgaði um 13% á milli ára. Air Iceland Connect jók framboðið um 18% og sætanýting nam 58,7%. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 55% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 19% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 68,2% samanborið við 67,9% í desember í fyrra. Flutningatölur fyrir árið 2017 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2017. Þeir voru alls 4,0 milljónir og fjölgaði um 10% frá fyrra ári. Sætanýting ársins nam 82,5% og jókst um 0,3 prósentustig samanborið við árið 2016. Heildarfjöldi farþega Air Iceland Connect var 349 þúsund og jókst um 7% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 17% og flutt frakt um 11%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2017 var 81,2% samanborið við 81,5% árið 2016.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|