|
|||
2024-04-19 20:48:08 CEST 2024-04-19 20:48:09 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Niðurstöður hluthafafundarLandsbankinn hf.: Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2024Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. apríl 2024, samþykkti að greiða 16.535 milljónir króna í arð til hluthafa. Arðgreiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2023. Greiðslan er tvískipt og er fyrri gjalddagi hinn 24. apríl 2024 en sá seinni 16. október 2024. Heildararðgreiðslur bankans á árabilinu 2013-2024 nema þar með 191,7 milljörðum króna. Á fundinum, sem haldinn var í Reykjastræti 6, flutti Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, skýrslu stjórnar fyrir árið 2023. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans á liðnu starfsári. Ársreikningur fyrir liðið starfsár var samþykktur, sem og tillögur um starfskjarastefnu og um kjör bankaráðsmanna. Fundurinn kaus ríkisendurskoðanda sem endurskoðanda félagsins fyrir rekstrarárið 2024. Í samræmi við heimildir ríkisendurskoðanda til að útvista verkefnum sínum hefur hann tilnefnt í framhaldi af útboði um verkefnið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers ehf. til að annast endurskoðun ársreikninga félagsins fyrir rekstrarárið 2024. Eftirtaldir einstaklingar voru kjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar: Aðalmenn: Jón Þorvarður Sigurgeirsson (formaður) Eva Halldórsdóttir Kristján Þ. Davíðsson Rebekka Jóelsdóttir Steinunn Þorsteinsdóttir Þór Hauksson Örn Guðmundsson Varamenn: Sigurður Jón Björnsson Stefanía G. Halldórsdóttir Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, samskipti@landsbankinn.is Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, fjárfestatengsl@landsbanki.is Viðhengi |
|||
|