|
|||
![]() |
|||
2016-05-12 18:42:43 CEST 2016-05-12 18:42:43 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður selur 153 íbúðirÍbúðalánasjóður og BK-eignir ehf. hafa náð samkomulagi um kaup þeirra síðarnefndu á 153 íbúðum samtals að fjárhæð 3.740.248.000 af Íbúðalánasjóði og var samningur þar að lútandi undirritaður nú áðan. Þann 14. desember s.l. bauð Íbúðalánasjóður til sölu í opnu og gagnsæu söluferli 15 eignasöfn fasteigna sem staðsett voru víða um landið. Í þessu tilfelli er um að ræða sölu á 5 þessara eignarsafna. Fjöldi íbúða í þessum eignasöfnum voru 504 eignir og er því hér um að ræða um 30,4% eignanna sem til sölu voru. Kaupsamningar vegna sölu annarra eignasafna sem í bárust skuldbindandi tilboð verða undirritaðir á næstu vikum í samræmi við skilmála söluferlisins. Sala þessara eigna mun hafa jákvæð áhrif á rekstur sjóðsins. Nánari upplýsingar veitir Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs. |
|||
|