2011-03-15 16:31:30 CET

2011-03-15 16:32:30 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824



Föstudaginn 18. mars kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu bréf í tveggja ára flokknum RIKB 12 0824.  Heildarfjárhæð
samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 23. mars 2011.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 22.
mars 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 23. mars 2011.