|
|||
2017-09-19 19:18:04 CEST 2017-09-19 19:18:04 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 5.540 m.kr. Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.000 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,70%. Heildartilboð voru 1.080 m.kr. á bilinu 2,70% - 2,72%. Heildarstærð flokksins verður 16.220 m.kr. eftir útgáfuna. Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 4.400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,73%. Heildartilboð voru 4.460 m.kr. á bilinu 2,71% - 2,74%. Heildarstærð flokksins verður 14.060 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 26. september næstkomandi. Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 37.880 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 102.580 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárstýring - Jóhann Ottó Wathne , treasury@islandsbanki.is og í síma 440 4607. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|