|
|||
![]() |
|||
2017-01-04 17:55:30 CET 2017-01-04 17:55:30 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Leiðrétting - Niðurstöður víxlaútboðs - Frétt birt 2017-01-04 17:03:26 CETLeiðrétting: Verð í flokki LBANK 170710 leiðrétt Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum flokki, LBANK 170612 og nýjum flokkum, LBANK 170710 og LBANK 180110. Heildartilboð í útboðinu voru 45 talsins og námu samtals 7.480 m. kr. Sautján tilboð að fjárhæð 2.860 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170612 og voru vextir tilboða á bilinu 5,25%-5,50%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.800 m. kr. á 5,36% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,7727. Nítján tilboð að fjárhæð 2.680 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 170710 og voru vextir tilboða á bilinu 5,19%-5,50%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.480 m. kr. á 5,39% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,3615. Níu tilboð að fjárhæð 1.940 m. kr. bárust í flokkinn LBANK 180110 og voru vextir tilboða á bilinu 5,51%-5,84%. Engum tilboðum í flokkinn var tekið. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. janúar 2017. Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/vixlar. [] |
|||
|