|
|||
![]() |
|||
2010-07-01 10:58:18 CEST 2010-07-01 10:59:16 CEST REGULATED INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning - SamruniUndanfarið hefur Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og dótturfélag þess, Farice hf., unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna í samvinnu stærstu kröfuhafa þeirra og hluthafa. Góður gangur hefur verið í viðræðum og eru aðilar vongóðir að farsæl niðurstaða liggi fyrir með haustinu. Sem hluti af endurskipulagningunni hafa stjórnir félaganna samþykkt samrunaáætlun félaganna, þar sem að Eignarhaldsfélagið Farice ehf. yfirtekur Farice hf. Samruninn mun miðast við 1. janúar 2010. Í ljósi þessa hefur samkomulag það sem í gangi hefur verið á milli félaganna og kröfuhafa þeirra verið framlengt til loka ágúst n.k. |
|||
|