2024-07-10 17:37:18 CEST

2024-07-10 17:37:18 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Festi hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Festi hf.: Uppgjör vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. - breyting á framkvæmdastjórn Festi


Í dag fór fram uppgjör á greiðslu kaupverðs á öllu hlutafé Lyfju hf. til seljanda og er félagið þar með orðinn hluti af samstæðu Festi.  Eins og áður hefur verið tilkynnt um þá skrifaði Festi undir kaup á öllu hlutafé Lyfju hf. þann 13. júlí 2023. Þann 14. júní 2024 undirrituðu Festi og Samkeppniseftirlitið sátt vegna kaupanna, sem var síðasti fyrirvari í kaupunum á Lyfju. Viðmiðunardagur uppgjörs vegna kaupanna er 1. júlí 2024 og mun Lyfja því koma inn í samstæðuuppgjör Festi frá og með þeim degi.

Kaupverð hlutafjár nam kr. 7.116 millj. kr., sem byggir á bráðabirgðauppgjöri félagsins, en það skiptist annars vegar í greiðslu reiðufjár að fjárhæð kr. 5.076 millj. kr. og hins vegar í afhendingu 10. millj. hluta í Festi að markaðsvirði kr. 2.040 millj. kr. miðað við dagslokagengið 204 á Nasdaq Iceland þann 10. júlí 2024. Endanlegt kaupverð gæti breyst lítillega þegar uppgjör Lyfju á fyrstu sex mánuðum ársins 2024 liggur fyrir, sem stefnt er að fyrir lok júlí.

Festi tók nýtt lán vegna kaupanna í dag sem eykur skuldsetningu samstæðunnar um 4.000 millj. kr. Nánar verður greint frá viðskiptunum og fjármögnun þeirra í tengslum við birtingu félagsins á uppgjöri 2. ársfjórðungs þann 31. júlí nk.

Samhliða uppgjörinu í dag hefur Hildur Þórisdóttir, starfandi forstjóri og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Lyfju, tekið sæti í framkvæmdastjórn Festi.

Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi:  

„Þetta er stór stund og mikilvæg tímamót í vegferð Festi. Undanfari sameiningarinnar hefur tekið tíma en verið lærdómsríkt ferli sem leggur traustan grunn að samstarfinu innan samstæðunnar. Fram undan eru gríðarlega spennandi tímar og fjöldi tækifæra til samvinnu, samlegðar, aukinnar hagkvæmni og vaxtar þvert á félögin, sem eru ein sterkustu vörumerki landsins, hvert á sínum markaði. Hjá Lyfju starfar þrautþjálfað og vel menntað starfsfólk sem hefur byggt upp eina öflugustu lyfjaverslanakeðju landsins. Með sameinuðum, reynslumiklum og öflugum hópi starfsfólks, munum við tryggja almenningi og fyrirtækjum landsins breitt en hnitmiðað vöruúrval nauðsynjavara á sem besta verði. App- og netsala ásamt vel staðsettum þjónustustöðvum og verslunum okkar um land allt munu gegna hér lykil hlutverki. Samhliða verður lögð áhersla á að stuðla að bættri lýðheilsu í landinu með vönduðu vöruframboði, fræðslu, ráðgjöf og annarri heilbrigðisþjónustu eftir því sem tækifæri gefast. Allt atriði sem verða sífellt mikilvægari með fjölgun landsmanna og hækkandi lífaldri. “  

Hildur Þórisdóttir, starfandi forstjóri og framkvæmdastjóri mannauðssviðs Lyfju:  

„Lyfja hefur verið á umfangsmikilli vegferð með það markmið að lengja líf og auka lífsgæði Íslendinga. Þetta gerum við í gegnum nýsköpun, með fræðslu og fyrirbyggjandi lausnum ásamt því að veita faglega lyfjafræðilega ráðgjöf um allt land. Við hjá Lyfju horfum björtum augum fram á veginn og hlökkum til að efla enn frekar þjónustu við okkar viðskiptavini með öflugu og framsýnu baklandi.“       

Nánari upplýsingar veitir Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi – asta@festi.is