2012-11-23 12:45:00 CET

2012-11-23 12:45:04 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 31 0124


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 31 0124:

Alls bárust 18 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.200 m.kr. að nafnverði. 5
tilboðum var tekið fyrir 3.600 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 96,400 (6,85%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 28. nóvember 2012.