|
|||
![]() |
|||
2015-10-29 15:22:40 CET 2015-10-29 15:23:42 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Standard and Poor's staðfestir lánshæfismatseinkun bankans, BBB-/A-3 með stöðugum horfumStandard & Poor's hefur staðfest lánshæfismatseinkun Íslandsbanka, BBB-/A-3, með stöðugum horfum eftir að tilkynnt var um breytingar á tillögu hóps kröfuhafa Glitnis um stöðuleikaframlag. Helstu breytingar frá áður tilkynntum tillögum kröfuhafa Glitnis til ríkisins eru að Glitnir mun afsala öllu hlutafé ISB holding ehf., sem er eigandi 95% hlutafjár Íslandsbanka hf., til stjórnvalda. Þessar breytingar fela í sér að Íslandsbanki mun ekki greiða sérstakar arðgreiðslur til Glitnis eins og áður var gert ráð fyrir. Í tilkynningu S&P segir að þessi nýi samningur, þ.e. að færa bankann í eigu ríkisins og að Íslandsbanki greiði ekki út arð, sé einfaldari en fyrri samningur og mun auðvelda eigendum Glitnis að losa fjármagn frá Íslandi fyrir árslok. S&P segir einnig að þeir geri ekki ráð fyrir að Íslandsbanki sé langtíma fjárfesting fyrir ríkið og telur að bankinn verði settur í söluferli innan tveggja ára. Einnig telja þeir líklegt að eiginfjárhlutföll verði lækkuð fyrir söluferlið og spá að RAC (Risk Adjusted Capital) hlutfallið verði 12%-13% fyrir lok árs 2017 sem er lækkun frá miðju ári 2015 en þá var RAC hlutfallið 17.3%. Stöðugar horfur S&P endurspegla forsendur þeirra um að bæði eiginfjárstaða og lausafjárstaða bankans verði áfram sterk eftir væntanlegt útflæði innlána í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta á næstu mánuðum. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 844 4752. Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 4005. [HUG#1962477] |
|||
|