|
|||
![]() |
|||
2012-12-05 18:25:29 CET 2012-12-05 18:26:30 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur nóvember 2012Félagið flutti 131 þúsund farþega í millilandaflugi í nóvember og voru þeir 25% fleiri en í nóvember á síðasta ári. Framboðsaukning var 31% á milli ára. Sætanýting nam 75,9% samanborið við 76,9% í nóvember 2011. Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru tæplega 26 þúsund í nóvember sem er lækkun um 4% á milli ára. Sætanýting nam 72,4% og jókst um 5,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% m.v. nóvember á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 6% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 24% frá nóvember á síðasta ári. Herbergjanýting var 61,8% og var 5,9 prósentustigum hærri en í nóvember 2011. MILLILANDAFLUG NÓV 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 131.021 25% 1.900.770 16% Sætanýting 75,9% -1,0 ppt 81,1% 1,6 ppt Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 504.011 31% 6.699.509 16% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG NÓV 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 25.665 -4% 320.812 -1% Sætanýting 72,4% 5,6 ppt 69,4% 0,4 ppt Framboðnir sætiskm. ('000) 11.171 -11% 167.251 0% LEIGUFLUG NÓV 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 86,4% -7,4 ppt 92,5% -0,6 ppt Seldir blokktímar 2.140 -12% 28.700 -9% FRAKTFLUTNINGAR NÓV 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.187 12% 169.072 8% Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.464 6% 81.941 16% HÓTEL NÓV 12 BR. (%) ÁTÞ 12 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 22.200 24% 271.294 15% Seldar gistinætur 13.712 37% 199.536 22% Herbergjanýting 61,8% 5,9 ppt 73,5% 3,8 ppt Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|