2016-08-09 23:48:27 CEST

2016-08-09 23:48:27 CEST


REGLERAD INFORMATION

Engelska Isländska
HS Orka hf. - Ársreikningur

HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrri helming ársins 2016


Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir fyrri helming ársins 2016. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum.
Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

Hagnaður tímabilsins nam 1.278 milljónum en á sama tímabili 2015 var hagnaður
af rekstri 142 milljónir. Rekstartekjur námu 3.507 milljónum (H1 2015: 3.824
milljónir) Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er lækkun álverðs og minni
sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja vegna lakrar loðnuvertíðar. 

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 874 m.kr. en voru neikvæðir um 1.568 m.kr. á
sama tímabili  árið 2015. Hækkun á virði afleiða (framtíðarvirði
orkusölusamninga sem tengjast álverði) er meginorsök breytingarinnar, en þeir
voru jákvæðir um 841 m.kr. á fyrstu sex mánuðum 2016 en lækkuðu um 1.239 m.kr.
á sama tímabili 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 150 m.kr. en voru
neikvæð um 282 m.kr. á sama tímabili 2015. 

Heildarhagnaður nam 1.193 milljónum á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við
hagnað upp á 75 milljónir á sama tímabili 2015. 

Eiginfjárhlutfall 30. júní 2016 er áfram mjög hátt eða 62,3% en var í árslok
2015 58,6%. 

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 855
9301.