2012-08-08 17:31:00 CEST

2012-08-08 17:31:04 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 12 1115 og RIKV 13 0215


Mánudaginn 13. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 1115 og RIKV 13 0215 sem eru með gjalddaga 15.
nóvember 2012 og 15. febrúar 2013. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. ágúst 2012.

Sótt verður um að RIKV 13 0215 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi fimmtudaginn 16. ágúst 2012.