|
|||
2023-06-02 14:43:15 CEST 2023-06-02 14:43:15 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 6. júní kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 27. Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 23 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 98,380. Áætlaður uppgjörsdagur er 13. júní 2023. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P. Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. |
|||
|