|
|||
![]() |
|||
2017-01-20 14:51:33 CET 2017-01-20 14:51:33 CET REGLERAD INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarEimskip stefnir að undirritun samnings um smíði skipaÍ maí 2016 undirrituðu Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line viljayfirlýsingu um að meta möguleika á samstarfi um smíði á gámaskipum. Eimskip hefur átt í samningaviðræðum við skipasmíðastöðvar í Kína í tengslum við smíði á tveimur 2.150 gámaeininga skipum með ísklassa. Viðræður eru enn í gangi en stefnt er að vali á skipasmíðastöð og undirritun samnings á næstu dögum. Ráðgert er að skipin tvö verði afhent fyrir árslok 2019. |
|||
|