|
|||
![]() |
|||
2017-02-02 19:20:01 CET 2017-02-02 19:20:01 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Arion Bank hf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur fagfjárfestasjóðsins Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund (ABMIIF) vegna ársins 2016Fagfjárfestasjóðurinn ABMIIF birtir ársreikning sinn fyrir árið 2016 -- Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 1.537 millj. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum. -- Hrein eign sjóðsins í árslok 2016 nam 24.607 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2016, efnahagi hans 31. desember 2016 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2016, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um ársreikning ABMIIF veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464. |
|||
|