2007-12-17 15:56:49 CET

2007-12-19 10:00:01 CET


REGULATED INFORMATION

FL GROUP hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

- Hækkun hlutafjár


Á stjórnarfundi FL Group hf. þann 14. desember 2007 tók stjórn félagsins
ákvörðun um að gefa út nýtt hlutafé að nafnverði kr. 680.272.109, á genginu
14,7, sem seldir verða til fjárfesta í framhaldi af hlutafjárútboði FL Group
sem lauk þann 14. desember 2007. Ákvörðun um hækkunina er tekin í samræmi við
heimild í b-lið 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt var á hluthafafundi
félagsins þann 25. september 2007. Heildarhlutafé félagsins eftir hækkun er kr.
9.925.000.682 að nafnverði. 

Frekari upplýsingar veitir:
Halldór Kristmannsson
Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs
Sími: 591 4400 / 669 4476