|
|||
![]() |
|||
2017-02-14 16:49:39 CET 2017-02-14 16:49:39 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 24 talsins og námu samtals 3.320 m. kr. að nafnverði. Tvö tilboð að fjárhæð 500 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu 5,39%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 5,39% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 15.000 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Níu tilboð að fjárhæð 1.320 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,43%-5,50%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 5,50% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 3.420 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sjö tilboð að fjárhæð 980 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,29%-3,34%. Tilboðum að fjárhæð 380m var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Heildarstærð flokksins verður 19.720 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sex tilboð að fjárhæð 520 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,03%-3,08%. Tilboðum að fjárhæð 380m var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,07%. Heildarstærð flokksins verður 4.120 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 21. febrúar 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|