2013-10-02 12:27:52 CEST

2013-10-02 12:28:53 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

CORRECTION: Breyting á stjórn Íbúðalánasjóðs


Hrund Hafsteinsdóttir hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs og hefur
félags- og húsnæðismálaráðherra skipað Rósu Guðbjartsdóttur í hennar stað sem
varaformann stjórnar sjóðsins. 

Rósa Guðbjartsdóttir er fædd 29. nóvember 1965 og er stúdent frá
Flensborgarskóla og með BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfaði
sem fréttamaður á Stöð 2 og Bylgjunni 1990 - 1999. Hún var framkvæmdastjóri
Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2001 - 2006. Frá árinu 2006 hefur Rósa
setið í bæjarstjórn og bæjarráði Hafnarfjarðar. Hún hefur verið ritstjóri
BF-útgáfu (Bókafélaginu) frá 2009. Á árunum 2007 - 2013 var Rósa varaþingmaður
og sat m.a. á Alþingi frá 1. október 2008 til 31. desember 2008. 

Rósa hefur verið formaður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna frá 2009 og í
fagráði Velferðarsjóðs íslenskra barna frá 2001.