|
|||
2009-11-27 16:48:45 CET 2009-11-27 16:49:45 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Orkuveitu Reykjavíkur tímabilið 1.1. til 30.9. 2009Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, fyrstu níu mánuði ársins 2009 var 8,6 milljarðar króna. Að teknu tilliti til þeirra þátta nemur halli af rekstrinum 11,3 milljörðum króna og ræðst það að mestu af 7,7% veikingu íslensku krónunnar frá áramótum. Á sama tímabili 2008 varð halli að fjárhæð 39,6 milljarðar króna af rekstrinum. Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir greiðslum af erlendum lántökum þrátt fyrir miklar gengissveiflur. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Helstu niðurstöður tímabilsins 1.1. til 30.9. 2009 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 11.288 milljóna króna halla fyrstu níu mánuði ársins 2009 samanborið við 39.588 milljóna króna halla fyrir sama tímabil árið áður. Rekstrartekjur tímabilsins námu 17.960 milljónum króna en voru 16.816 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 8.526 milljónir króna samanborið við 8.226 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 15.173 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 50.704 milljónir króna á sama tímabili árið 2008. Heildareignir þann 30. september 2009 voru 267.255 milljónir króna en voru 259.373 milljónir króna 31. desember 2008. Eigið fé þann 30. september 2009 var 36.470 milljónir króna en var 48.359 milljónir króna 31. desember 2008. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 30. september 2009 voru 230.784 milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008. Eiginfjárhlutfall var 13,6% þann 30. september 2009 en var 18,6% í árslok 2008. Ýmis mál Alþingi samþykkti á vorþingi 2008 breytingar á ýmsum lögum á orkusviði með gildistöku 1. júlí 2009. Gildistökunni var síðan frestað til 1. janúar 2010. Þessar breytingar fela það meðal annars í sér að skipta þarf fyrirtækinu upp þannig að sérleyfisstarfsemi og samkeppnisstarfsemi séu reknar í aðskildum fyrirtækjum. Undirbúningur þessarar skiptingar er á lokastigi. Horfur Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur. Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar og er áformað að taka 5. áfanga raforkuframleiðslu hennar í notkun síðla árs 2011. Þann 20. nóvember síðastliðinn samdi Orkuveita Reykjavíkur við Evrópska fjárfestingabankann um hagstæða fjármögnun helmings 5. áfangans og helming fyrirhugaðrar Hverahlíðarvirkjunar. Uppbygging hennar og annarra virkjanakosta mun taka mið af frekara aðgengi fyrirtækisins að fjármögnun og þeim lánskjörum sem í boði verða. Vegna óvissu í íslensku efnahagslífi hefur dregið úr fjárfestingum í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2009 og gripið hefur verið til víðtækra aðhaldsaðgerða í rekstri fyrirtækisins bæði hvað varðar launagreiðslur og annan rekstrarkostnað. Eiginfjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur mun á næstu misserum ráðast að miklu leyti af stöðu íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. |
|||
|