|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2021-07-25 16:47:15 CEST 2021-07-25 16:47:15 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsKvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 29 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 10.000.000 eigin hluti að kaupverði 238.600.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 16. júlí sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. apríl 2021. Kvika átti enga eigin hluti fyrir viðskiptin en hefur keypt samtals 10.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,21% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 238.600.000 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 117.256.300 hlutum. Þar að auki á TM tryggingar hf., dótturfélag bankans, 6.400.000 hluti sem félagið átti við sameiningu TM hf. og Kviku. Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 19. júlí 2021 til aðalfundar Kviku á árinu 2022, nema hámarks fjölda keyptra hluta verði náð fyrir þann tíma. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“ Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason, forstöðumaður fjárstýringar, í síma 540 3200.
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|