|
|||
![]() |
|||
2016-11-23 23:17:53 CET 2016-11-23 23:17:53 CET SÄÄNNELTY TIETO Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirNiðurstaða skuldabréfaútboðs ORReykjavík, 2016-11-23 23:16 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Útboð á nýjum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur fór fram 23. nóvember 2016 í umsjón fjárfestingarbankasviðs Arion banka. Boðin voru verðtryggð jafngreiðslubréf til tæplega 30 ára í flokknum OR090546 og óverðtryggð vaxtagreiðslubréf til 6 ára í nýjum flokki OR011222. Orkuveita Reykjavíkur ákvað að taka tilboðum í bréf að nafnverði 1.950 m.kr. samtals og gefa út skuldabréf í flokki OR090546 að nafnverði 1.450 m.kr. á 3,39% ávöxtunarkröfu og í flokki OR011222 að nafnverði 500 m.kr. á 5,99% ávöxtunarkröfu. Tilboð bárust í bréf að nafnverði 2.960 m.kr. samtals, með ávöxtunarkröfu á bilinu 3,29-3,44% í verðtryggða flokkinn og ávöxtunarkröfu á bilinu 5,94-6,40% í óverðtryggða flokkinn. Gjalddagi áskrifta, útgáfa og afhending bréfa er fyrirhuguð 1. desember 2016. Óskað verður eftir að hin nýju skuldabréf í báðum flokkum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann dag, en fyrsti viðskiptadagur er tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara. Áður hafa verið gefin út bréf í OR090546 að nafnverði 4.011.724.833 kr. sem tekin hafa verið til viðskipta. Nánari upplýsingar: Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR sími 516-6100, netfang ingvar.stefansson@or.is Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR sími 516-6100, netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. sími 444-7337, netfang verdbrefamidlun@arionbanki.isOrkuveita Reykjavíkur |
|||
|