|
|||
![]() |
|||
2015-05-08 17:30:00 CEST 2015-05-08 17:30:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 15 0817 og RIKV 15 1116Þriðjudaginn 12. maí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 0817 og RIKV 15 1116 sem eru með gjalddaga 17. ágúst og 16. nóvember 2015. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er föstudagurinn 15. maí 2015. Sótt verður um að RIKV 15 0817 og RIKV 15 1116 verði teknir til viðskipta í NASDAQ á Íslandi mánudaginn 18. maí 2015. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|