|
|||
2010-08-31 18:54:36 CEST 2010-08-31 18:55:35 CEST REGULATED INFORMATION Reitir II - ÁrsreikningurAfkoma Reita II á fyrri árshelmingi ársins 2010Tap Reita II ehf. (áður Landsafls ehf.) á fyrri árshelmingi ársins 2010 nam 375 milljónum króna samanborið við 1.118 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 566 milljónum króna samanborið við 728 milljónir á sama tímabili í fyrra. Horfur fyrir síðari árshelming ársins 2010 eru ágætar en vænta má að rekstur félagsins haldi áfram að vera í járnum. Lykiltölur: - Heildareignir námu 21.257 milljónum króna þann 30. júní 2010 og breyttust óverulega frá árslokum 2009. - Eigið fé félagsins nam 3.474 milljónum króna á sama tíma. - Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 806 milljónum króna samanborið við 905 milljónir króna á sama tíma árið áður. Reitir II er í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Félagið á og rekur 18 fasteignir á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir: Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri Reita Sími 575 9000 einar@reitir.is |
|||
|