|
|||
![]() |
|||
2016-08-09 17:31:02 CEST 2016-08-09 17:31:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 17 0215Fimmtudaginn 11. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 17 0215 sem er með gjalddaga 15. febrúar 2017. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 15. ágúst 2016. Sótt verður um að RIKV 17 0215 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi mánudaginn 15. ágúst 2016. Nánari upplýsingar veitir Laufey B. Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631. |
|||
|