|
|||
![]() |
|||
2016-06-08 19:53:37 CEST 2016-06-08 19:53:37 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf.: Lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlumÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum og víxlum. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var boðinn út og seldust 980 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,31%. Heildareftirspurn í útboðinu var 1,06 ma. kr. Heildarstærð ISLA CBI 26 að afloknu útboði verður 12,88 ma. kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 65,21 ma. kr. Seldir víxlar í 3ja mánaða flokkinn ISLA 16 0915 voru að nafnvirði 1,46 ma. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 98,3957) og í 6 mánaða flokkinn ISLA 16 1215 seldust að nafnvirði 0,4 ma. kr. á 6,45% flötum vöxtum (verð 96,8659). Heildareftirspurn var 4,08 ma. kr. Í kjölfar skráningar útboðsins verður heildarfjárhæð útistandandi víxla Íslandsbanka 9,84 ma. kr. Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 16. júní næstkomandi. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#2019101] |
|||
|