|
|||
![]() |
|||
2009-03-19 20:02:07 CET 2009-03-19 20:03:14 CET REGULATED INFORMATION Eyrir Invest ehf. - FyrirtækjafréttirYfirlýsing vegna fjölmiðlaumræðu um hugsanlegt yfirtökutilboð í Össur hf.Eyrir Invest er langtímafjárfestir sem hefur þá stefnu að fjárfesta í fyrirtækjum sem geta orðið leiðtogar á heimsvísu. Eyrir Invest hefur þannig verið hluthafi í Össuri og Marel frá árinu 2004 og er nú leiðandi hluthafi í Marel með um 40% hlut og annar stærsti hluthafinn í Össuri með 20% hlut. Eyrir Invest hefur stutt Marel og Össur til vaxtar á síðustu árum og hafa þau náð forystuhlutverki á heimsmarkaði, hvort á sínu sviði. Raunveruleg verðmætasköpun félaganna verður til þegar þau einbeita sér að auknum innri vexti og hagnaði, á grundvelli stærðar og styrks félaganna. Eyrir Invest staðfestir að hafa móttekið tilboð í hlutafjáreign sína í Össuri eftir viðræður við tiltekna einkaframtakssjóði. Viðræður þessar voru ekki að frumkvæði Eyris Invest. Eyrir Invest hafnaði tilboðum sem komu í hlut félagsins enda endurspegluðu tilboðin að mati Eyris Invest ekki þá virðisaukningu sem framundan er í rekstri Össurar. Eyrir Invest mun ekki hafa frumkvæði að frekari viðræðum. |
|||
|