|
|||
![]() |
|||
2010-03-31 17:59:57 CEST 2010-03-31 18:00:55 CEST REGULATED INFORMATION Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - FyrirtækjafréttirFjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. og dótturfélagsins Farice hf.Samkomulag það sem Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og kröfuhafar þess gerðu í desember 2009 hefur verið framlengt til 20. apríl n.k. Samkomulagið felur sem fyrr í sér að félagið fær frest út samningstímann til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. hefur að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu í samstarfi við kröfuhafa og aðra hagsmunahafa félagsins með aðstoð ráðgjafa. Farice hf., dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Farice ehf hefur einnig gerst aðili að samkomulagi við helstu kröfuhafa sína um frest til 20. apríl n.k. til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. |
|||
|