|
|||
2010-09-07 13:29:43 CEST 2010-09-07 13:30:41 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirTilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15. nóvember 2010Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðisnál nr. 44/1998, með síðari breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem kom húsbréfakerfinu á fót. Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Lista yfir hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingarblaðinu þann 15. september n.k. Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti flokki, á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til uppgreiðslna fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum. Því er fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar eins og lögin gera ráð fyrir. Aukaútdráttum er beitt til að jafna sjóðsstreymi Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. Húsbréf úr eftirtöldum órafvæddum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og koma til greiðslu þann 15. nóvember 2010: Heiti Nafnverð 1. flokkur 89 ( IBH14-0115 ) 25.520.000 1. flokkur 90 ( IBH15-0815 ) 33.135.000 2. flokkur 90 ( IBH15-1115 ) 43.360.000 2. flokkur 91 ( IBH16-0515 ) 58.880.000 3. flokkur 92 ( IBH17-0815 ) 76.720.000 2. flokkur 93 ( IBH18-0815 ) 43.420.000 2. flokkur 94 ( IBH19-0515 ) 125.860.000 3. flokkur 94 ( IBH19-0815 ) 72.460.000 |
|||
|