|
|||
2009-11-09 17:31:21 CET 2009-11-09 17:32:22 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 10 0315Fimmtudaginn 12. nóvember kl: 11:00 fer fram útboð hjá lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokki RIKV 10 0315 sem er með gjalddaga 15. mars 2010. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 16. nóvember 2009. Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi þriðjudaginn 17. nóvember 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|