|
|||
2021-04-09 17:47:04 CEST 2021-04-09 17:47:04 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarKvika banki hf.: Lykill 17 1Með vísan til 23. gr. endanlegra skilmála skuldabréfaflokksins LYKILL 17 1 (IS0000028801) tilkynnist hér með að útgefandi (nú Kvika banki hf.) mun greiða upp útistandandi höfuðstól og áfallna vexti skuldabréfaflokksins á næsta gjalddaga, þann 15. maí 2021 (greiðsla fer fram þann 17. maí). Í samræmi við endanlega skilmálana skuldabréfaflokksins greiðir útgefandi 1,25% uppgreiðslugjald vegna fyrirframgreiðslunnar. Nánari upplýsingar veitir Halldór Karl Högnason forstöðumaður fjárstýringar hjá Kviku banka hf. (halldor.hognason@kvika.is / s: 5403200). |
|||
|