2017-04-03 18:04:57 CEST

2017-04-03 18:04:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Niðurstöður víxlaútboðs


Landsbankinn  hf. lauk í dag lokuðu útboði á þremur víxlaflokkum, þegar útgefnum
flokki, LBANK 170911 og nýjum flokkum, LBANK 171010 og LBANK 180410.

Heildartilboð í útboðinu voru 25 talsins og námu samtals 3.680 m. kr.

Sex  tilboð að fjárhæð 600 m. kr. bárust  í flokkinn LBANK 170911 og voru vextir
tilboða á bilinu 5,09%-5,35%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Ellefu  tilboð að  fjárhæð 1.460 m.  kr. bárust  í flokkinn LBANK 171010 og voru
vextir  tilboða á bilinu 5,10%-5,35%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 960 m. kr. á
5,20% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 97,4247.

Átta  tilboð  að  fjárhæð  1.620 m.  kr.  bárust í flokkinn LBANK 180410 og voru
vextir  tilboða á bilinu 5,34%-5,55%. Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.100 m. kr.
á 5,44% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu 94,7728.

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 10. apríl 2017.

Nánari  upplýsingar  um  víxlana  má  finna  á  vefsvæði  fjármögnunar  bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.


[]