|
|||
![]() |
|||
2014-11-25 17:15:04 CET 2014-11-25 17:16:05 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Landsbankinn selur eignarhlut sinn í Borgun hf.Landsbankinn hefur í dag undirritað samning um sölu á 31,2% eignarhlut sínum í Borgun hf. Söluverð er 2.184 milljónir króna. Að kaupunum stendur breiður hópur fjárfesta ásamt félagi á vegum stjórnenda Borgunar. Borgun er leiðandi fyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar, en þessar breytingar hafa engin áhrif á viðskiptavini Borgunar eða rekstur félagsins. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki eftirlitsaðila, í samræmi við lög. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans: „Undanfarin ár hefur Landsbankinn verið áhrifalaus minnihlutaeigandi í Borgun en Íslandsbanki hefur átt meirihluta hlutafjár. Í samræmi við sátt sem gerð var við Samkeppniseftirlitið árið 2008 eru miklar takmarkanir á aðkomu Landsbankans sem hluthafa að starfsemi Borgunar. Ennfremur hefur það verið markmið samkeppnisyfirvalda að aðeins einn banki sé hluthafi í hverju greiðslukortafyrirtæki á hverjum tíma. Þessi staða var óviðunandi fyrir Landsbankann og því teljum við þetta vera farsæla úrlausn fyrir bankann, félagið og nýja eigendur.“ Magnús Magnússon, forsvarsmaður Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf: „Aðstandendur Eignarhaldsfélagsins Borgunar slf. eru ánægðir með kaupin og hefur vegferðin verið til fyrirmyndar í alla staði.“ Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar: „Við hjá Borgun lítum breytt eignarhald jákvæðum augum. Landsbankinn hefur verið góður en afar fjarlægur hluthafi, enda bundinn af samkomulagi við Samkeppniseftirlitið frá því 2008 um takmörkuð afskipti af rekstrinum. Þessi viðskipti eru í takt við þá þróun sem átt hefur sér stað í nálægum löndum, þar sem bankar hafa verið að selja eignarhluti sína í greiðslumiðlunarfyrirtækjum og telja starfsemi þeirra ekki lengur til kjarnastarfsemi.“ Nánari upplýsingar veita: f.h. Landsbankans: Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn, 410 4011/899 9352 f.h. Borgunar: Haukur Oddsson, forstjóri, ho@borgun, 560 1600 f.h. kaupenda: Magnús Magnússon , magnus@orbis-invest.com, 615 0065 |
|||
|