2017-07-27 18:01:48 CEST

2017-07-27 18:01:48 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Landsbankinn hf.: Landsbankinn hagnast um 12,7 milljarða króna á fyrri helmingi ársins 2017


Afkoma Landsbankans var jákvæð um 12,7 milljarða króna eftir skatta á fyrri
helmingi ársins 2017 samanborið við 11,3 milljarða króna hagnað á sama tímabili
árið 2016. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 10,6% á ársgrundvelli samanborið
við 8,6% á sama tímabili 2016 og kostnaðarhlutfall lækkar og er nú 43%.
Hreinar vaxtatekjur voru 18,2 milljarðar króna og hækkuðu um 3,2% á milli
tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 4,4 milljörðum króna og hækkuðu um 13,8%
frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar lækkuðu um 1 milljarð króna á
milli tímabila og vanskilahlutfall heldur áfram að lækka, var 1,1% á fyrri
helmingi ársins samanborið við 1,7% á sama tímabili 2016.
Rekstrartekjur bankans á fyrri helmingi ársins hækkuðu um 2,5% frá sama tímabili
ári áður, úr 28,6 milljörðum króna í 29,3 milljarða króna. Aðrar rekstrartekjur
námu 5,4 milljörðum króna samanborið við 4,8 milljarða króna sama tímabil árið
áður og skýrist hækkunin aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum á óskráðum
hlutabréfum.
Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,5% á fyrri helmingi ársins 2017 en var 2,3% á
sama tímabili árið áður.
Rekstrarkostnaður bankans nam 12 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins 2017
sem er lækkun um 1,7% miðað við sama tímabil árið 2016. Þar af var
launakostnaður 7,1 milljarður sem er lækkun um 2,3% frá sama tímabili 2016.
Annar rekstrarkostnaður lækkaði um 0,8% frá sama tímabili árið 2016 og var 4,9
milljarðar.
Kostnaðarhlutfall á fyrri helmingi ársins 2017 var 43,0% sem er lækkun um 4,3
prósentustig frá sama tímabili árið áður. Skýrist lækkunin einkum af jákvæðri
þróun á mörkuðum ásamt lægri rekstrarkostnaði bankans.
Eigið fé Landsbankans var 238,9 milljarðar króna 30. júní sl. og
eiginfjárhlutfallið var 27,6%.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:
,,Afkoma Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2017 var góð og er til marks um
stöðugan og traustan rekstur bankans. Rekstrartekjur héldu áfram að aukast,
einkum vegna aukinna umsvifa í hagkerfinu og aukinnar markaðshlutdeildar
bankans. Um leið veldur hagræðing því að rekstrarkostnaður minnkar.
Það er sérstaklega gleðilegt fyrir okkur að ánægja með þjónustu bankans hefur
aukist og fleiri bera traust til bankans. Einnig sjáum við áframhaldandi jákvæða
þróun í vanskilum því vanskilahlutfall viðskiptavina heldur áfram að lækka og er
nú 1,1%.
Í júní greiddi Landsbankinn að fullu upp eftirstöðvar skuldabréfa sem árið 2009
voru gefin út til gamla Landsbanka Íslands hf, nú LBI ehf. Við nýttum okkur að
Landsbankanum bjóðast sífellt betri kjör á erlendum fjármagnsmörkuðum og með því
að greiða skuldabréfin upp sparast töluverður fjármagnskostnaður. Ávinningur af
uppgreiðslu og endurfjármögnun skuldabréfanna mun koma fram að fullu í
rekstrarreikningum bankans frá og með þriðja ársfjórðungi 2017 og bætt kjör á
mörkuðum munu þar að auki bæta samkeppnishæfni bankans í útlánum í erlendri
mynt."

Nánari upplýsingar veita:

Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310


[]