|
|||
![]() |
|||
2007-11-01 11:30:59 CET 2007-11-01 11:30:59 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Landsbanki Íslands hf. - Árshlutareikningar- 9 mánaða reikningur 2007Hagnaður 35 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 33% Innlán 76% af útlánum til viðskiptavina Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi Landsbanka Íslands hf. 30.09.2007: • Hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 nam 35,0 milljörðum króna (EUR 402m) eftir skatta í samanburði við 26,2 milljarða króna á sama tímabili 2006. Hagnaður fyrir skatta var 39,6 milljarðar króna (EUR 455m). • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 33%. • Grunntekjur samstæðunnar (vaxtamunur og þjónustutekjur) námu 68,5 milljörðum króna (EUR 786m) á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 og jukust um 31% miðað við sama tímabil 2006. • Þóknunartekjur námu 29,7 milljörðum króna (EUR 341m) og eru þær hærri en sem nemur öllu árinu 2006. Hafa þær aukist um 46% samanborið við fyrstu níu mánuði fyrra árs. • Gengismunur og fjárfestingatekjur námu 16,7 milljörðum króna (EUR 191m) í samanburði við 12,3 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2006. • Kostnaðarhlutfall tímabilsins var 48%. • Heildareignir bankans námu 2.847 milljörðum króna (EUR 32,4bn) króna í lok september 2007 í samanburði við 2.173 milljarða króna í upphafi ársins. • Innlán viðskiptavina hafa aukist um 104% og námu 1.390 milljörðum króna (EUR 15,8bn) í lok september 2007. Innlánin nema 76% af heildarútlánum til viðskiptavina í samanburði við 47% í ársbyrjun. • Eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,2% í lok september 2007. Eiginfjárþáttur A var 9,9% Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs 2007: • Hagnaður eftir skatta á þriðja ársfjórðungi nam 8,7 milljörðum króna (EUR 100m). • Arðsemi eigin fjár eftir skatta á 3. ársfjórðungi var 22,4%. • Hreinar rekstrartekjur þriðja ársfjórðungs námu 26,6 milljörðum króna (EUR 305m). • Hreinar vaxtatekjur námu 14,4 milljörðum króna (EUR 166m) í samanburði við 13,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. • Þóknunartekjur þriðja ársfjórðungs námu 10,2 milljörðum króna (EUR 117m) og hafa þær aldrei verið hærri á einum ársfjórðungi. Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri: ”Afkoma og arðsemi Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2007 er mjög góð. Hagnaður eftir skatta nemur 35 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár 33%. Um helmingur tekna bankans kemur nú erlendis frá auk þess sem stór hluti af tekjum innlendrar starfsemi er tengdur erlendum myntum. Er hlutfall erlendra mynta í heildartekjum nú um það bil tveir þriðju. Í ljósi þessa hefur bankinn byggt upp um 70 milljarða gjaldeyrisstöðu til þess að verja eigið fé bankans fyrir gengissveiflum. Þóknunartekjur bankans héldu áfram að vaxa á þriðja ársfjórðungi 2007 og er hann sá besti frá upphafi hvað þær varðar. Grunnafkoma bankans á fyrstu níu mánuðunum ársins 2007 er mjög góð og var arðsemi eiginfjár fyrir skatta af grunnstarfsemi 26%. Afkomuhorfur fyrir árið 2007 hjá Landsbankanum eru í heild sinni góðar”. Halldór J. Kristjánsson bankastjóri: ”Árangur af margháttuðum aðgerðum sem bankinn greip til á fyrri hluta ársins 2006 til að lækka markaðsáhættu, styrkja áhættustýringu, lengja afborgunarferli lántöku bankans og sérstaklega með fjölþættri alþjóðlegri innlánastarfsemi er að koma fram með skýrum hætti nú á þriðja ársfjórðungi. Þau skref sem Landsbankinn hefur stigið, sérstaklega varðandi fjármögnun bankans hafa komið sér mjög vel í þeim óróa sem gætt hefur á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Innlán viðskiptavina nema nú um helmingi af heildarfjármögnun samstæðunnar og munar þar mestu um innlán frá 110 þúsund viðskiptavinum sem valið hafa IceSave innlánsform okkar í Bretlandi. Lausafjárstaða bankans var því afar sterk nú í haust þegar erfiðleikar byrjuðu á alþjóðlegum lausafjármörkuðum. Eiginfjár- og lausafjárstaða bankans er með því sem best gerist á evrópskum bankamarkaði og sú staða felur í sér tækifæri við núverandi aðstæður á alþjóðlegum mörkuðum ”. Árshlutareikning Landsbanka Íslands hf. 30.09.2007 má nálgast á heimasíðu bankans www.landsbanki.com Nánari upplýsingar veita bankastjórar Landsbankans: Sigurjón Þ. Árnason í síma 410-4009 / 898-0177 og Halldór J. Kristjánsson í síma 410-4015 / 820-6399. |
|||
|