2007-11-01 16:14:37 CET

2007-11-01 16:14:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

- Ívar Ragnarsson tekur við starfi sviðsstjóra Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs


Ívar Ragnarsson hefur tekið við starfi sviðsstjóra Fjármálasviðs Íbúðalánasjóðs
frá og með deginum í dag, 1. nóvember 2007. Ívar mun jafnframt taka sæti í
framkvæmdastjórn sjóðsins. Jóhann G. Jóhannsson, sem gegndi starfi sviðsstjóra
Fjármálasviðs lét af því starfi 11. september s.l. 
 
Ívar Ragnarsson er með meistaragráðu í fjármálum að mennt og starfaði áður á
fjárstýringarsviði hjá Glitni hf. frá maí á þessu ári. Þar áður var hann
sérfræðingur við Fjármálasvið Íbúðalánasjóðs frá febrúar 2005 til maí 2007. 
 
Nánari upplýsingar veitir:
Hallur Magnússon, sviðsstjóri Þróunarsviðs,
Sími: 569 6911
hallur@ils.is