2009-10-26 16:39:07 CET

2009-10-26 16:40:08 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Sala íbúðabréfa og ríkisbréfa


Þriðjudaginn 27. október fer fram útboð á íbúðabréfum og ríkisbréfum sem lögð
voru fram til tryggingar verðbréfalánum sem ríkissjóður yfirtók. Útboðinu
verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Í boði eru
eftirfarandi flokkar að nafnverði: 

Flokkar		Nafnverð
HFF150224 	4,3 ma.kr.
HFF150434 	3,2 ma.kr.
RIKB 13 0517	3,8 ma.kr.
RIKB 19 0226	3,1 ma.kr.

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabankans í gegnum
Bloomberg-útboðskerfið milli kl. 09:30 og 10:00. Tilboð skulu sett fram í
verðum, með þremur aukastöfum Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. Niðurstaða verður birt kl. 11:00. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur. 29. október 2009.