|
|||
![]() |
|||
2024-07-03 12:58:26 CEST 2024-07-03 12:58:26 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarHorfur á lánshæfi Landsvirkjunar hjá Moody´s hækkaðar í jákvæðarMatsfyrirtækið Moody´s hefur breytt horfum á lánshæfi Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar og staðfest Baa1 lánshæfiseinkunn fyrirtækisins. Þá hefur Moody´s hækkað grunneinkunn Landsvirkjunar (e. The Baseline Credit Assessment, BCA) úr ba1 í baa3 en það hefur ekki áhrif á lánshæfiseinkunn. Að mati Moody´s endurspeglar þessi jákvæða breyting sterkan rekstur Landsvirkjunar síðustu ár, góða fjárhagsstöðu og lækkun skulda. Auk þess hafa breyttar horfur á lánshæfi ríkissjóðs Íslands áhrif en í júlí 2023 breytti Moody´s horfum ríkissjóðs úr stöðugum í jákvæðar. Samkvæmt Moody´s gæti lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar hækkað ef lánshæfiseinkunn ríkissjóðs hækkar og ef sjóðstreymis- og skuldakennitölur Landsvirkjunar halda áfram að vera sterkar. Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, ![]() |
|||
|