|
|||
2009-05-05 16:04:13 CEST 2009-05-05 16:05:13 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - Ársreikningur- Kynning á afkomu þriðja ársfjórðungsAlfesca mun birta rekstrarniðurstöður fyrir þriðja ársfjórðungs rekstrarársins 2008-2009 (jan - mars) þriðjudaginn 12. maí. nk. eftir lokun markaða. Opinn kynningarfundur fyrir fjárfesta, greiningaraðila og fjölmiðla verður haldinn sama dag og þar mun Xavier Govare, forstjóri félagsins fara yfir uppgjörið. Dags: þriðjudaginn 12. maí 2009 Staður: Hilton Reykjavik Nordica Tími: kl. 16:30 Afrit af kynningum má nálgast á vefsíðu félagsins að fundi loknum. Um Alfesca Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 647 milljónir Evra og starfsmenn eru um 3,600. Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). Nánari upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com Nánari upplýsingar veita: Antony Hovanessian, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, í síma 477 7000 Hrefna Ingólfsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs, í síma 477 7007 Fréttatilkynning þessi er birt á bæði ensku og íslensku. Ef um misræmi er að ræða gildir enski textinn. |
|||
|