|
|||
2017-02-24 09:18:43 CET 2017-02-24 09:18:43 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - ÁrsreikningurIslandsbanki hf. : Ársuppgjör 2016Ársuppgjör Íslandsbanka 2015 Helstu niðurstöður: Helstu niðurstöður á árinu 2016: * Hagnaður eftir skatta var 20,2 ma. kr., samanborið við 20,6 ma. kr. 2015. Hagnaður ársins 2016 einkennist af sterkum grunntekjum og lokum sölu eignarhluta Borgunar í Visa Europe, samanborið við háa jákvæða virðisbreytingu útlána árið 2015. * Arðsemi eigin fjár var 10,2% samanborið við 10,8% árið 2015 * Hagnaður af reglulegri starfsemi var 15,1 ma. kr., samanborið við 16,2 ma. kr. 2015. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall þáttar 1 var 10,7% samanborið við 12,4% 2015. * Hreinar vaxtatekjur voru 31,8 ma. kr. (2015: 28,0 ma. kr.) sem er 14% hækkun. Vaxtamunur hækkaði og var 3,1% (2015: 2,9%), að hluta vegna hærra vaxtaumhverfis og hækkandi eigin fjár. * Hreinar þóknanatekjur voru 13,7 ma. kr. 2016 samanborið við 13,2 ma. 2015. * 1,7 ma. kr. voru bókaðar sem einskiptiskostnaður vegna skemmda á húsnæði bankans á Kirkjusandi og flutninga í nýjar höfuðstöðvar. * Kostnaðarhlutfall var 56,9% (2015: 56,2%). Bankaskattur og einskiptiskostnaður er undanskilinn við útreikning kostnaðarhlutfalls. Langtímamarkmið bankans er 55%. * Heildareignir voru 1.048 ma. kr. (sept 16: 1.068 ma. kr.). Útlán til viðskiptavina og lausafé nema 93% af heildareignum bankans. * Útlán til viðskiptavina jukust í 688 ma. kr. á árinu sem er 3,3% aukning. Ný útlán voru 163 ma. kr. sem dreifast á mismunandi viðskiptaeiningar bankans, en styrking krónunnar hafði dempandi áhrif á útlánaaukningu. * Hlutfall útlána með sértæka virðisrýrnun eða í meira en 90 daga vanskilum var 1,8% (des 15: 2,2%) * Innlán frá viðskiptavinum við lok árs voru sambærileg við 2015. Væntingar um útflæði vegna losunar gjaldeyrishafta hafa ekki ræst. * Eiginfjárhlutfallið var 25,2% og eiginfjárþáttur 1 (CET1) var 24,9%. Víkjandi lán að fjárhæð EUR 138m var fyrirframgreitt í september. * Lausafjárstaða bankans er sterk og er umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið. Í desember 2016 var lausafjárhlutfallið (LCR) 187% (sept 16: 195%) og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 123% (sept 16: 126%). * Vogunarhlutfall (e. leverage ratio) var 16,0% við lok tímabilsins samanborið við 18,1% í lok árs 2015 sem telst afar hóflegt. * Bankinn gaf út þrjú skuldabréf í erlendri mynt á árinu og er bankinn nú að fullu fjármagnaður á markaði. Fyrsta útgáfan var í janúar, USD 35m, næsta í maí, EUR 75m og sú þriðja í ágúst, EUR 500m (65 ma. kr.) til fjögurra ára á 1,75% föstum vöxtum, sem jafngilti 200 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum (um z+97 punktar í dag). * Í október 2016 hækkaði S&P lánshæfismat bankans í BBB/A-2 með jákvæðum horfum og í janúar 2017 hækkaði Fitch mat sitt í BBB/F3 með stöðugum horfum. Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með tvö lánshæfismöt. Helstu atriði á 4. ársfjórðungi 2016: * Hagnaður eftir skatta var 4,6 ma. kr. á fjórðungnum (4F15: 3,9 ma. kr.). * Hagnaður af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1 var 11,7% á fjórðungnum (4F15: 12,8%). * Hreinar vaxtatekjur voru 8,1 ma. kr. (4F15: 7,0 ma. kr.). * Hreinar þóknanatekjur voru 3,8 ma. kr. (4F15: 3,2 ma. kr.). Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: Árið 2016 var mjög gott ár fyrir Íslandsbanka og einkenndist af mikilvægum áföngum í sögu bankans. Grunnrekstur bankans hélt áfram að styrkjast og tekjur voru stöðugar. Endurskipulagningu lánasafnsins er lokið, eignarhlutir í óskyldum rekstri hafa verið seldir og gæði eigna halda áfram að aukast. Bankinn lét mikið að sér kveða á fjármagnsmörkuðum hér heima og erlendis. Helst ber að nefna útgáfu á 500 milljón evra skuldabréfi og hefur ávöxtunarkrafa bréfanna lækkað töluvert á eftirmarkaði. Í desember greiddi bankinn út sérstaka arðgreiðslu að upphæð 27 ma. kr., en heildararðgreiðslur til íslenska ríkisins á árinu 2016 voru 37 ma. kr. Með arðgreiðslunni var stigið fyrsta skrefið í átt að að hagstæðari samsetningu á eiginfjárgrunni bankans og undirbúningi að breyttu eignarhaldi. Í takt við árangur við afnám gjaldeyrishafta og minnkandi skuldsetningu voru lánshæfismatseinkunnir ríkissjóðs Íslands allar hækkaðar á árinu og eru nú A-3 / A- / BBB+. Lánshæfismat Íslandsbanka fékk einnig hækkun í BBB frá bæði Standard & Poor's og Fitch Ratings, en Íslandsbanki er eini bankinn á Íslandi með tvö alþjóðleg lánshæfismöt. Fjórða árið í röð eru viðskiptavinir Íslandsbanka ánægðustu viðskiptavinirnir samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar. Átta ár í röð höfum við verið kosinn faglegasti bankinn og sá banki sem veitir fyrirtækjum bestu bankaþjónustuna.Hápunktur ársins var síðan flutningur okkar í nýjar höfuðstöðvar þar sem svokölluð verkefnamiðuð vinnuaðstaða er höfð í fyrirrúmi. Verkefnamiðuð vinnuaðstaða veitir okkur sveigjanleika í skipulagi og eykur samvinnu sem aftur styður við þá stefnu okkar að vera #1 í þjónustu. Afkomufundur á íslensku Í dag kl. 12.30, munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í Norðurturni, útibúi bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar. Skrá mig á fjárfestafund. Símafundur á ensku Einnig er markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn. Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|