2014-01-07 09:50:27 CET

2014-01-07 09:51:28 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur desember 2013


Í desember flutti félagið 141 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18%
fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og
sætanýting var 76,2% samanborið við 72,6% á sama tíma í fyrra. 

Farþegar í millilandaflugi félagsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2013.
Þeir voru alls 2.257.305 og fjölgaði um 12% frá árinu 2012.  Árleg aukning
undanfarin ár hefur numið 12-18% og eru farþegar félagsins nú orðnir einni
milljón fleiri en árið 2009. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæp 20 þúsund í desember og
fækkaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 10%
samanborið við desember 2012. Sætanýting nam 65.0% og lækkaði um 1,5
prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 8% á milli
ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á
hótelum félagsins var 45,7% samanborið við 46,1% í desember í fyrra. 

MILLILANDAFLUG                      DES 13   BR. (%)     ÁTÞ 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                     140.820       18%  2.257.485       12%
Sætanýting                           76,2%   3,6 ppt      79,3%  -1,2 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)    547,5       15%    8.320,3       16%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG     DES 13   BR. (%)     ÁTÞ 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                      19.752      -10%    307.309      -11%
Sætanýting                           65,0%  -1,5 ppt      71,1%   1,9 ppt
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)      9,5      -10%      154,5      -13%
LEIGUFLUG                           DES 13   BR. (%)     ÁTÞ 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                       90,9%  11,7 ppt      91,0%  -0,3 ppt
Seldir blokktímar                    2.219       -8%     28.089      -10%
FRAKTFLUTNINGAR                     DES 13   BR. (%)     ÁTÞ 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)        14.206       10%    201.796        9%
Seldir tonnkm. (FTK´000)             8.107        9%     94.769        6%
HÓTEL                               DES 13   BR. (%)     ÁTÞ 13   BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur               22.940        0%    314.603        7%
Seldar gistinætur                   10.481       -1%    222.320        6%
Herbergjanýting                      45,7%  -0,4 ppt      70,7%  -0,7 ppt



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010