2016-11-11 18:34:59 CET

2016-11-11 18:34:59 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfum


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 23 var stækkaður um 1.480 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 5,72%.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 760 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,34%.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 2.040 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,22%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.580 m.kr.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 18. nóvember næstkomandi.

Í tengslum við útboðið fór fram skiptiútboð þar sem eigendum verðtryggða
flokksins ISLA CBI 16 gafst kostur á að selja skuldabréf í flokknum gegn kaupum
á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Nafnverð skiptanna voru 1.280 m.kr.

Það  sem af er  ári 2016 hefur Íslandsbanki  gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
18.000 m.kr.  Heildarfjárhæð  útistandandi  sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka
verður að nafnverði 65.420 m.kr.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]