|
|||
![]() |
|||
2014-09-04 12:55:30 CEST 2014-09-04 12:56:31 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirBreyting á stjórn Íbúðalánasjóðs.Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Þorstein Arnalds varaformann í stjórn Íbúðalánasjóðs í stað Hauks F. Leóssonar. Þorsteinn lauk M.Sc. prófi í tölfræði frá University College London árið 2000 og C.S. prófi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1996. Hann stýrði hættumati vegna ofanflóða á Veðurstofu Íslands 1996-2001, vann við upplýsingatækniráðgjöf hjá Nýherja 2001-2004. Þorsteinn starfaði við þróun fasteignamatsaðferða, greiningu og útgáfu fasteignaupplýsinga hjá Þjóðskrá Íslands 2004-2012, í áhættustýringu Arion banka 2012-2014 og er nú sérfræðingur í upplýsingaöryggi hjá Persónuvernd. |
|||
|