|
|||
2014-03-13 12:45:00 CET 2014-03-13 12:45:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0616 OG RIKV 14 0915Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0616 og RIKV 14 0915 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 14 0616: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.680 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.450 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,905 (flatir vextir 4,38%). RIKV 14 0915: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.110 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.760 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,776 (flatir vextir 4,50%). |
|||
|