2023-06-02 14:43:15 CEST

2023-06-02 14:43:15 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 6. júní kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn LBANK CB 27.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur óverðtryggða flokksins LBANK CB 23 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 98,380.

Áætlaður uppgjörsdagur er 13. júní 2023.

Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.