|
|||
2018-11-14 17:49:55 CET 2018-11-14 17:49:55 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða. Í heild bárust 13 tilboð upp á 2.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.640 milljónir kr. Í heild bárust 3 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 300 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,79% - 4,95%. Engum tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn. Í heild bárust 10 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.040 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,75% - 4,95%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.640 milljónir á 4,85% flötum vöxtum. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. nóvember næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108. |
|||
|